30.5.2008 | 14:12
Allt á sinn tíma
Þá er síðasti skólabúðahópurinn okkar farinn. Ég var nú hálfklökkur þegar ég kvaddi þau í matsalnum. Harkaði það svo af mér og stóð keikur enda mjög sáttur við þær breytingar sem í vændum eru. Við tekur frágangur, þrif og fleira skemmtilegt
Seinni partinn er svo von á tengdó-inu mínu sem eru á leið til Akureyrar en ætla að á hér í nótt og hlökkum við mikið til að fá þau, sennilega í síðasta sinn sem þau koma hingað til okkar.
Svo á að bruna suður á bóginn í blíðuna og reyna að gera skurk í málun á stofu og eldhúsi og sjá hvernig húsið lítur út núna eftir verktakana sem eru að vinna í því.
Allt á sinn tíma og svo er einnig með skólabúðatímann okkar. Þetta eru búin að vera 7 nokkuð góð ár og ýmislegt hefur gerst á þessum tíma sem safnast í reynslusarpinn okkar.
Góðar stundir.
ÞG
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
H4-260
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.