9.8.2008 | 23:37
Matarhelgin mikla
Dalvíkingar halda nú Fiskidaginn mikla með pompi og prakt og þvílíkur mannfjöldi sækir þá heim og skemmtir sér. Í útvarpinu í morgun heyrði ég að það þætti sjálfsagt á Dalvík þessa helgi að óboðnir sem og boðnir gestir fengju sér súpuskammt í húsum bæjarins. Einnig að það þætti alveg sjálfsagt að gestir hátíðarinnar bönkuðu upp á hjá íbúum bæjarins og fengju að nota klósettin hjá þeim. Sennilega er bara gott að búa í Njarðvík en ekki á Dalvík!!!
Annars höfum við nú haldið okkar hátíð hér á H4 um helgina. Hún nefnist Matarhátíðin mikla. Hátíðin hófst með því að hluti af mínu fólki kom hér í mat í gærkvöldi og tókst það bara bærilega. Svo í kvöld þá tilkynntu tengdóið að þau væru flúin að heiman eftir innrás unglingagengis sem hefði yfirtekið stofuna til að spila tölvuleiki. Þau voru að sjálfsögðu velkomin og aftur var slegið í grill að hætti hússins. Það tókst líka bara bærilega og tengdafaðirinn rumdi af ánægju með rabarbarapæið sem húsmóðirin útbjó sérstaklega handa honum. Annars hef ég svolítið gaman að rabarbaraáhuga frúarinnar minnar sem allt í einu hefur gert vart við sig. Í gegnum árin höfum við iðulega haft mikinn rabarbaragarð sem hefur allt í senn verið allt og stór og gjarnan ekki verið hirt nógu vel um að hirða afraksturinn. Nú bregður svo við að sennilega erum við bara með eðlilega stærð af rabarbaragarði hér á H4, en þá vill hún allt í einu miklu stærri garð með annari tegund af rabarbara og sennilega sitthvað fleira. Þannig að erfitt er að gera rabarbaraóðum húsmæðrum til hæfis.
Hátíðin heldur svo áfram á morgun því hver veit nema að það læði sér einhverjir velboðnir gestir í mat hjá okkur. Ég vil bara taka fram að það vorum við IP sem gengum inn á Fitjar og versluðum í Bónus og örkuðum svo aftur heim með innkaupin í plastpokum, en ekki einhverjir aumingjans útlendingar sem eiga engan bíl. Við fórum nefnilega í Fitjamaraþon í dag en ekki í Keflavíkurmaraþon. Ekki veitir af ef matarveislan heldur áfram. Af nógu er nefnilega að taka.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
H4-260
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Velkomin heim aftur. Þið verðið komin í fantaform áður en við verður litið með öllu þessu labbi
Ég þarf endilega að líta við hjá ykkur þegar ég kem næst á ykkar skaga.
Kv Haddý og co á skipaskaga
Hallfríður Jóna Jónsdóttir, 11.8.2008 kl. 01:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.