26.8.2008 | 23:07
Gestagangur á Gili
Skemmtilegur dagur er senn á enda runninn. Eins og fram kom í fyrri færslu þá var blaðinu dreift á ljóshraða til að standa við þau skilyrði sem blaðberum eru sett. Svo tók við sund. 500 m steinlágu hjá okkur Bergi og svo var verið að taka á móti sonum og senda þá aftur í skólann í allan dag. Mikið um eyður hjá Fjölbrautungunum.
Frú Erna sem kennd er við Elías renndi suður með sjó í dag og skemmti okkur hjúum með sinni einstöku nánd og gleði. Alltaf gaman að vera í samneyti við skemmtilega vini eins og fjölskylduna þá. Mamma birtist og krafðist kaffisopa og var svo rokin med det samme til að hreinsa til á bæjarskrifstofunum. Eins og hvítur stormsveipur.
Oddgeir sjoppukarl kom svo eftir pizzuát kvöldsins og átti með okkur notalega stund. Synirnir eru ótrúlega vel stilltir inn á að aðlagast breyttum lífsháttum og leggja sig alla fram um að vera jákvæðir í hvívetna. Andri tók Berginn með sér í Sporthúsið og lét hann puða því eitthvað finnst honum Bergurinn vera væskilslegur miðað við aðra fjölskyldumeðlimi feitu fjölskyldunnar á H4.
Betra barn en Marhissa Kristín ehf. fyrirfinnst ekki, nema ef vera skyldu synir okkar. Hún er óðum að ná sér og skríða saman eftir kirtlatökuna og viljum við meina að það sé ekki síst okkur að þakka í rólegheitum og umhyggju. Nóg af athygli og tíma til fyrir litlu skrudduna okkar sem okkur þykir svo ósköp vænt um.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
H4-260
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.